Skráning stofu
Fyrst: auðkenndu þig.
Við þurfum að vita hver er að skrá stofuna, og þú skrifar undir samninginn með sömu skilríkjum síðar. Þannig þarftu ekki að slá inn kennitöluna þína og hún getur ekki orðið röng.
Auðkenna með rafrænum skilríkjum
Viltu frekar spyrja um eitthvað fyrst? Sendu okkur línu á konkret@konkret.is.
Segðu okkur frá stofunni.
Við setjum Konkret upp fyrir þig. Því meira sem þú fyllir út, því minna þarf að stilla eftir á, en aðeins fyrstu tveir hlutarnir eru skylda: stofan sjálf og sá sem skrifar undir. Allt annað má sleppa og klára síðar.
Engar upplýsingar um skjólstæðinga hér. Kennitölur, netföng og símanúmer skjólstæðinga fara aldrei í tölvupóst eða í þetta form. Þau fara eingöngu beint inn í Konkret eftir að stofan er komin í gang.
Takk. Við höfum fengið skráninguna.
Við förum yfir hana og höfum samband við þig í tölvupósti.
- Við yfirförum upplýsingarnar og setjum upp stofuna.
- Þú færð þjónustusamninginn og vinnslusamninginn í einu skjali, með hlekk þar sem þú sérð þá áður en þú undirritar.
- Þú undirritar með rafrænum skilríkjum, og þá fyrst verður stofan til í kerfinu.
Eitt sem þið þurfið að gera sjálf. Breyting á sjúkraskrárkerfi er tilkynningarskyld til Embættis landlæknis. Þið sendið tilkynninguna í þjónustugátt landlæknis, og yfirlit yfir tilkynningar vegna reksturs heilbrigðisþjónustu er á island.is. Við aðstoðum við þær upplýsingar sem snúa að kerfinu sjálfu, en tilkynningin kemur frá rekstraraðilanum.
Spurningar í millitíðinni: konkret@konkret.is