Hoppa beint í efni
Konkret

Sjúkraskrárkerfi fyrir sálfræðinga.

Meiri tími fyrir það sem skiptir máli. Konkret heldur utan um skráningar, matslista, bókanir og reikninga á einum stað, svo þú getir veitt skjólstæðingum fulla athygli í stað þess að eltast við umsýslu.

Yfirlit dagsins í Konkret: dagskrá, matslistar og skjólstæðingar
  • Skráð hjá Embætti landlæknis
  • Íslenskt
  • Þróað af sálfræðingi
  • Gögnin þín læsast ekki inni
Lilja Magnúsdóttir
Sálfræðingurinn

Kerfið er hannað af sálfræðingi sem vinnur daglega með skjólstæðingum.

Lilja Magnúsdóttir er sálfræðingur, framkvæmdastjóri Konkret og einn af stofnendum þess. Hún rekur sálfræðistofuna Seiglu og starfar samhliða sem skólasálfræðingur, svo hún þekkir bæði stofurekstur og skólaþjónustu af eigin raun.

Kynntu þér teymið

Verkfærin

Verkfæri sem styðja við daglegt starf.

Verkfærin sem mæta daglegri klínískri vinnu, öll á einum stað.

01 / Skráning

Raddinnsláttur í nótur

Þú talar nótuna inn og hún skrifast beint í kerfið, svo þú hefur meiri tíma til að einbeita þér að skjólstæðingnum.

02 / Eigin listar

Þínir eigin spurningalistar

Búðu til þína eigin matslista með aðstoð gervigreindar á fáeinum mínútum.

03 / Mat

Matslistar og framvinda

Þú notar matslistana sem stofan hefur leyfi fyrir, sendir þá í tæki skjólstæðingsins og stigin reiknast eftir útgefnum stigareglum.

04 / Undirritanir

Rafrænar undirritanir

Sendu skjólstæðingum skjöl til undirritunar beint úr Konkret.

05 / Biðlisti

Biðlisti og utanumhald

Nýjar beiðnir berast skipulega í gegnum gáttina, ekki í tölvupósti eða SMS-um.

06 / Tilvísanir

Tilvísanir og skjöl

Skjólstæðingar skila tilvísunum og gögnum áður en fyrsta viðtal hefst.

07 / Skýrslur

Skýrsluritillinn

Matsskýrslan er skrifuð inni í kerfinu, á sömu skrá og matslistarnir. Stig, nöfn, aldur og dagsetningar færast inn úr skránni og nöfn beygjast rétt í öllum föllum.

★ Rammasamningur

Minni vinna kringum Sjúkratryggingar.

Beiðnir og reikningar á rammasamningi fara beint úr kerfinu til Sjúkratrygginga. Umsýslan í kringum hvert mál styttist og þú færð tímann til baka í viðtöl.

Fyrir hvern

Hannað fyrir sálfræðinga, hentar fleiri stéttum.

Lausnin er þróuð í kringum þarfir klínískrar vinnu og daglegs starfs sjálfstætt starfandi sálfræðinga, stofnana og teymisvinnu.

Klíníska vinnan sjálf, mat sem svarað er í tæki skjólstæðingsins, markmið, nótur og skýrslur, á við um fleiri stéttir. Við segjum hverri stétt fyrir sig hvað á við og hvað ekki.

Bókanir

Fullbúið bókunarkerfi fylgir með.

Skjólstæðingar sjá lausa tíma á bókunarsíðu stofunnar og bóka sjálfir. Tíminn fer beint í dagatalið þitt, áminning fer sjálfkrafa fyrir viðtalið og kerfið kemur í veg fyrir að tveir nái sama tíma.

Þú þarft ekki að kaupa bókunarkerfi sérstaklega og halda utan um tvo staði fyrir sama tímann.

Öll gögn eru dulkóðuð og varðveitt innan EES, í samræmi við lög nr. 55/2009 um sjúkraskrár og GDPR.
Gögnin þín eru geymd á opnu, alþjóðlegu sniði sem íslensk og evrópsk heilbrigðiskerfi stefna á. Þú getur því alltaf flutt þau með þér.
Rafræn sjúkraskrá verður skylda 1. desember 2026.

Frá 1. desember 2026 ber hverjum heilbrigðisstarfsmanni að færa sjúkraskrá í stafrænt sjúkraskrárkerfi. Þetta kemur fram í 4. gr. laga nr. 55/2009 um sjúkraskrár, sbr. 3. gr. laga nr. 81/2025.

Flestir sem starfa sjálfstætt þurfa því að velja sér kerfi í haust. Konkret er skráð hjá Embætti landlæknis.

Hvað lögin segja um rafræna og stafræna sjúkraskrá

Næsta skref

Betri verkfæri fyrir faglegt starf.

Sjáðu hvernig Konkret getur einfaldað daglegt klínískt starf.

Hafa samband konkret@konkret.is
Við höfum samband. Konkret Health ehf., konkret.is