Hoppa beint í efni
Um teymið

Fólkið á bak við Konkret.

Konkret er íslenskt sjúkraskrárkerfi, hannað í kringum daglegt starf sálfræðinga. Að baki því standa sálfræðingur sem vinnur daglega með skjólstæðingum og verkfræðingar með langa reynslu af hugbúnaðarþróun.

Lilja Magnúsdóttir

Lilja Magnúsdóttir

Framkvæmdastjóri og meðstofnandi

Sálfræðingur með cand.psych.-gráðu frá Kaupmannahafnarháskóla. Rekur sálfræðistofuna Seiglu og starfar samhliða sem skólasálfræðingur, og þekkir því bæði stofurekstur og skólaþjónustu af eigin raun. Leiðir félagið og klíníska þróun Konkret.

LinkedIn
Ásbjörn Hagalín Pétursson

Ásbjörn Hagalín Pétursson

Tæknistjóri og meðstofnandi

Vélaverkfræðingur og tölvunarfræðingur (BSc frá Háskólanum í Reykjavík, MSc frá Chalmers) með tólf ára reynslu af hugbúnaðar- og gagnaþróun og stjórnun, meðal annars hjá alþjóðlegu greiðslufyrirtæki og í flugleiðsögu. Leiðir tækniþróun Konkret.

LinkedIn

Þróunarteymið

Konkret er smíðað og rekið af reyndu þróunarteymi með bakgrunn í hugbúnaðarþróun, upplýsingaöryggi og rekstri kerfa fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir.

Viltu sjá kerfið?

Við sýnum þér Konkret og förum yfir hvernig það hentar þinni stofu. Óska eftir kynningu eða skrifaðu okkur á konkret@konkret.is.