Fyrir sálfræðinga

Sjúkraskrárkerfi fyrir sálfræðinga.

Skjólstæðingurinn svarar. Kerfið reiknar. Þú túlkar. Frá 1. desember 2026 verður öllum sálfræðingum skylt að halda sjúkraskrá í stafrænu sjúkraskrárkerfi. Konkret er íslenskt kerfi, þróað frá grunni fyrir sálfræðinga, af sálfræðingi. Matslistarnir fara út í eigin tæki, stigin reiknast eftir útgefnum stigareglum og niðurstaðan situr í sömu skrá og nótan þín.

Konkret er skráð hjá Embætti landlæknis. Kynningartilboð stendur þeim til boða sem hafa samband — við förum yfir stofuna með þér og sjáum til þess að kerfið sé komið í notkun fyrir 1. desember.

  • Þróað af sálfræðingi
  • Skráð hjá Embætti landlæknis
  • Íslenskt
  • Gögnin þín læsast ekki inni
Hafðu samband og kerfið er í notkun fyrir 1. desember.

Innleiðing, uppsetningarfundur á stofunni, flutningur úr eldra kerfi og þjálfun starfsfólks fylgja án gjalds.

Frá 1. desember 2026 verður öllum sálfræðingum skylt að halda sjúkraskrá í stafrænu sjúkraskrárkerfi (4. gr. laga nr. 55/2009, sbr. lög nr. 81/2025). Flestir þurfa því að velja sér kerfi í haust. Lestu hvað skyldan felur í sér.

Konkret er skráð hjá Embætti landlæknis.

Verkfærin

Byggt utan um klínískt starf sálfræðinga.

Frá fyrstu upplýsingaöflun til nótu, mats og skýrslu, allt á einum stað.

01 / Upplýsingaöflun

Stafræn gagnaöflun frá skjólstæðingi

Þú notar matslistana sem stofan hefur leyfi fyrir og býrð til þína eigin. Skjólstæðingar svara þeim í eigin tæki með rafrænum skilríkjum og niðurstöður reiknast sjálfkrafa. Hægt er að bæta við upplýsingagjöfum eftir því sem við á, t.d. foreldrum eða kennurum, og kerfið sendir sjálfkrafa áminningar um að klára listana.

02 / Bókanir og gátt

Bókanir, skjólstæðingagátt og biðlisti

Innbyggt bókunarkerfi fylgir Konkret. Skjólstæðingar sjá lausa tíma á bókunarsíðu stofunnar og bóka sjálfir, tíminn fer beint í dagatalið og áminning fer sjálfkrafa fyrir viðtalið. Kerfið kemur í veg fyrir að tveir nái sama tíma. Nýjar beiðnir berast gegnum gáttina og fara skipulega á biðlista.

03 / Skráning

Raddinnsláttur í nótur

Þú talar nótuna inn og hún skrifast beint í kerfið, svo þú hefur meiri tíma til að einbeita þér að skjólstæðingnum.

04 / Skjöl

Skjalagátt og undirritanir

Heilsugæsla, skóli eða skjólstæðingurinn sjálfur sendir þér skjöl auðkennd með rafrænum skilríkjum. Þau bíða þín í móttökuhólfi þar til þú vistar þau í réttri skrá, svo ekkert lendir í sjúkraskránni án þinnar ákvörðunar. Í hina áttina sendirðu skjöl til undirritunar beint úr kerfinu.

05 / Sjúkratryggingar

Sjálfvirk skil til SÍ

Tilvísanir og reikningar á rammasamningi fara í lotum beint úr kerfinu inn í gátt Sjúkratrygginga og staða hverrar sendingar skilar sér til baka, í stað handvirkrar skráningar. Innifalið í verðinu.

06 / Trúnaður

Engin önnur stofa sér þínar skrár

Sjúkraskrárnar þínar eru læstar við þína stofu og starfsfólk Konkret kemst ekki í þær. Gögnin eru dulkóðuð og varðveitt innan EES, í samræmi við lög nr. 55/2009 og GDPR.

Sjúkraskráin þín læsist ekki inni. Hún er geymd á opnu, alþjóðlegu sniði sem evrópsk heilbrigðiskerfi stefna á, og hættir þú hjá okkur afhendum við hana á því sniði.
Skýrsluritillinn

Skýrslan skrifast þar sem gögnin eru.

Matsskýrslan er skrifuð inni í kerfinu, á sömu skrá og matslistarnir. Ekkert er fært á milli forrita.

Þú byrjar ekki á auðu blaði

Konkret fylgja tilbúin sniðmát, meðal annars fyrir sálfræðimat barna. Stofan getur búið til sín eigin og geymt orðalag sem þú notar aftur og aftur.

Gögnin færast inn úr skránni

Stig, nöfn, aldur og dagsetningar koma úr skrá skjólstæðingsins. Nöfn beygjast rétt í öllum föllum.

Ekkert fer hálfklárað

Sniðmátið getur haft eyður sem verður að fylla, og kerfið gengur ekki frá skýrslu sem á eftir að klára. Frágengin skýrsla læsist og leiðrétting verður að nýrri útgáfu.

Afhendingin er hluti af verkinu

Þú sendir skóla eða foreldri hlekk sem opnast með rafrænum skilríkjum, ekki viðhengi í tölvupósti. Hann rennur út og þú getur afturkallað hann.

Ritillinn skrifar ekki skýrsluna fyrir þig. Hann sækir gögnin, heldur utan um uppsetninguna og lætur þig um túlkunina.
Lilja Magnúsdóttir
Sálfræðingurinn

Kerfið er hannað af sálfræðingi sem vinnur daglega með skjólstæðingum.

Lilja Magnúsdóttir er sálfræðingur og einn af stofnendum Konkret. Hún rekur sálfræðistofuna Seiglu og starfar samhliða sem skólasálfræðingur, svo hún þekkir bæði stofurekstur og skólaþjónustu af eigin raun.

Hún lauk cand.psych.-prófi í klínískri sálfræði frá Kaupmannahafnarháskóla og hefur starfað við sálfræðimat og meðferð barna og unglinga síðan 2013, þar á meðal á BUGL og hjá Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarbæ.

Spurningar um kerfið fara beint á hana: 848-1528

Næsta skref

Skráðu áhuga

Kynningartilboð
Fáðu tilboð þegar þú hefur samband

Við förum yfir stærð stofunnar og hvað þú þarft, og sendum verð sem passar. Öll verð án vsk.

  • Fríir fyrstu mánuðir
  • Innleiðing án gjalds
  • Sjúkratryggingar innifaldar

Kynningartilboðið fæst þegar þú hefur samband. Í því felast fríir fyrstu mánuðir, afsláttur af áskriftinni og trygging fyrir því að stofan sé komin í notkun fyrir 1. desember, þegar skylt verður að halda sjúkraskrá í stafrænu sjúkraskrárkerfi.

Fríu mánuðirnir teljast frá fyrsta notkunardegi. Þú getur sagt upp hvenær sem er og tekið gögnin þín með þér.

Innifalið í verðinu: sjúkraskrá, matslistar og skorun, skýrsluritill, bókanir, biðlisti, skjalamóttaka, reikningar og sjálfvirk skil til Sjúkratrygginga, Mínar síður og frír aðgangur fyrir ritara. Innleiðing, uppsetningarfundur á stofunni, flutningur úr eldra kerfi og þjálfun starfsfólks fylgja án gjalds. Engar sérstakar áskriftir að bókunar-, undirritunar- eða skjalasendingarkerfum. Notkunargjöld leggjast á SMS, rafrænar undirritanir og auðkenningar.

Spurningar? Lilja Magnúsdóttir, s. 848-1528
Skráning

Skráðu áhuga á forsíðunni

Skráningin fer nú fram á forsíðu Konkret, þar sem þú færð líka yfirlit yfir kerfið. Fylltu út stutt form og við höfum samband.

Fara í skráningu
Konkret Health ehf. · konkret.is · Gögn varðveitt innan EES.