Þjónustuskilmálar Konkret

Þjónustu- og áskriftarsamningur milli Konkret Health ehf. og viðskiptavinar (veitanda heilbrigðisþjónustu)

Útgáfa: v3


1. Aðilar

1.1. Þjónustuveitandi: Konkret Health ehf., kt. 7006262450, með skráð aðsetur að Reynihlíð 9, 105 Reykjavík (hér eftir „Konkret Health“). Tengiliður: konkret@konkret.is. Persónuverndarfulltrúi: personuvernd@konkret.is.

1.2. Viðskiptavinur: sú sálfræðistofa eða sá veitandi heilbrigðisþjónustu sem gengst undir þessa skilmála við skráningu og stofnun aðgangs (hér eftir „Viðskiptavinurinn“ eða „stofan“). Auðkennisupplýsingar Viðskiptavinarins (nafn, kennitala, tengiliður og ábyrgðarmaður) eru skráðar við nýskráningu og teljast hluti þessa samnings.

1.3. Konkret Health og Viðskiptavinurinn nefnast sameiginlega „aðilar“ og hvor um sig „aðili“.

2. Skilgreiningar

3. Efni og gildissvið samnings

3.1. Þessir skilmálar mynda bindandi samning milli Konkret Health og Viðskiptavinarins um veitingu Þjónustunnar. Með því að staðfesta skilmálana við nýskráningu, eða með því að taka Þjónustuna í notkun, telst Viðskiptavinurinn hafa samþykkt skilmálana í heild.

3.2. Eftirtalin skjöl teljast hluti samningsins og gilda í eftirfarandi forgangsröð ef misræmi kemur upp: (a) Vinnslusamningurinn (sjá 5. gr.) að því er varðar vinnslu persónuupplýsinga; (b) þessir þjónustuskilmálar; (c) áskriftaryfirlit; (d) tæknileg fylgiskjöl og notkunarleiðbeiningar.

3.3. Þessir skilmálar taka til rekstrar- og áskriftarþátta Þjónustunnar. Vinnsla persónuupplýsinga ræðst af Vinnslusamningnum og gildandi lögum, sbr. 5. gr.

4. Lýsing á Þjónustunni (Konkret)

4.1. Konkret er rafrænt sjúkraskrárkerfi í skilningi laga nr. 55/2009 sem Konkret Health veitir sem hugbúnað í þjónustu (SaaS). Kerfið gerir heilbrigðisstarfsmönnum Viðskiptavinarins kleift að færa og varðveita sjúkraskrár í samræmi við lög og reglur.

4.2. Nánari lýsing á vinnslunni og virkni Þjónustunnar er í Viðauka I við Vinnslusamninginn.

4.3. Konkret Health hýsir Þjónustuna hjá Google Cloud á netþjónum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Við venjulegan rekstur eru persónuupplýsingar ekki fluttar varanlega út fyrir EES. Öryggisráðstafanir, hýsing og undirvinnsluaðilar eru tilgreind í Vinnslusamningnum og viðaukum hans.

4.4. Auðkenning notenda fer fram með rafrænum skilríkjum gegnum Kenni.is, og rafræn undirritun gegnum þær undirritunarþjónustur sem tilgreindar eru í Viðauka III við Vinnslusamninginn. Slík auðkenning og undirritun lúta jafnframt skilmálum viðkomandi þjónustuveitenda.

4.5. Konkret Health áskilur sér rétt til að þróa, uppfæra og endurbæta Konkret, þar á meðal að bæta við, breyta eða fella niður einstaka eiginleika, enda skerði slíkar breytingar ekki verulega meginvirkni Þjónustunnar á áskriftartímanum. Verulegar breytingar sem draga úr virkni skulu tilkynntar skv. 16. gr.

4.6. Breytingar sem nauðsynlegar eru vegna öryggis, lagaskyldu eða fyrirmæla stjórnvalda má gera án fyrirvara. Um slíkar breytingar skal tilkynna Viðskiptavininum svo fljótt sem verða má, og tilkynningarfrestur skv. 16. gr. gildir ekki um þær.

5. Hlutverk aðila: ábyrgðaraðili og vinnsluaðili

5.1. Viðskiptavinurinn er ábyrgðaraðili sjúkraskráa skv. lögum nr. 55/2009 og ábyrgðaraðili persónuupplýsinga skv. lögum nr. 90/2018 og GDPR. Konkret Health er vinnsluaðili sem vinnur persónuupplýsingar fyrir hönd hans og eingöngu samkvæmt fyrirmælum hans.

5.2. Um vinnsluna og tæknileg úrræði hennar gildir Vinnslusamningur aðila skv. 28. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679 („GDPR“), sem fylgir þessum skilmálum og er undirritaður með þeim. Hann telst óaðskiljanlegur hluti þessa samnings og gengur framar þessum skilmálum um allt sem varðar vinnslu persónuupplýsinga.

5.3. Þótt Þjónustan útvegi tæknileg úrræði til þess arna hvílir lögbundin ábyrgð ábyrgðaraðila sjúkraskráa áfram á Viðskiptavininum, þ.m.t. lögmæti aðgangs, reglubundið eftirlit, leiðréttingar og varðveisla. Ákvæðið haggar ekki ábyrgð Konkret Health samkvæmt þessum skilmálum eða Vinnslusamningnum.

6. Skyldur og ábyrgð Viðskiptavinarins

6.1. Lagaheimild vinnslu. Viðskiptavinurinn ábyrgist að hann hafi lögmæta heimild til vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem hann skráir eða lætur skrá í Konkret, þ.m.t. heilsufarsupplýsinga sem njóta verndar sem sérstakur flokkur persónuupplýsinga (11. gr. laga nr. 90/2018; 9. gr. GDPR), og að vinnslan samrýmist lögum nr. 55/2009, lögum nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga og öðrum gildandi lögum.

6.2. Umsjónaraðili og aðgangsstýring. Viðskiptavinurinn skal tilnefna umsjónaraðila sjúkraskráa og ber ábyrgð á stjórnun notenda sinna: að veita aðgang eingöngu á grundvelli þarfar vegna meðferðar og eftir starfsgrein og stöðu, að afturkalla aðgang án tafar þegar hann á ekki lengur við, og að tryggja að hver notandi noti einungis eigin, persónubundin skilríki.

6.3. Yfirlýsing heilbrigðisstarfsmanns. Viðskiptavinurinn skal tryggja að hver notandi staðfesti aðgangsheit/notkunarskilmála heilbrigðisstarfsmanns áður en aðgangur er veittur, og að notendur virði þagnarskyldu, lögmætan aðgang og aðrar skyldur samkvæmt lögum nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn og lögum nr. 55/2009.

6.4. Reglubundið eftirlit. Viðskiptavinurinn ber ábyrgð á reglubundnu eftirliti umsjónaraðila með lögmæti aðgangs að sjúkraskrárupplýsingum, sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 550/2015, með því að nýta eftirlitsvirkni Konkret.

6.5. Réttmæti gagna og leiðréttingar. Viðskiptavinurinn ber ábyrgð á réttmæti, gæðum og lögmætri færslu þeirra gagna sem hann skráir, og á meðferð beiðna skjólstæðinga um aðgang og leiðréttingu, sbr. 7. og 14. gr. laga nr. 55/2009.

6.6. Varðveisla. Viðskiptavinurinn skal varðveita sjúkraskrár í samræmi við lög nr. 55/2009, reglugerð nr. 550/2015 og fyrirmæli landlæknis, óháð uppsögn eða lokum þessa samnings.

6.7. Öryggi og lögmæt notkun. Viðskiptavinurinn skal viðhalda eigin öryggisferlum, tryggja rétta notkun Þjónustunnar af hálfu notenda sinna og nota Þjónustuna í samræmi við lög, þessa skilmála og eðlilegar notkunarleiðbeiningar. Viðskiptavinurinn skal ekki reyna að afla sér óheimils aðgangs, valda röskun á Þjónustunni eða nýta hana í ólögmætum tilgangi. Viðskiptavininum og notendum hans er jafnframt óheimilt að endurselja eða endurdreifa Þjónustunni, bakþátta eða afrita hugbúnaðinn, hlaða upp skaðlegum kóða, eða skrá í Þjónustuna gögn sem hann hefur ekki aflað með lögmætum hætti.

6.8. Tilkynning um öryggisbrest. Viðskiptavinurinn skal tilkynna Konkret Health án ótilhlýðilegrar tafar um grun um öryggisbrest sem varðar Þjónustuna. Skiptingu tilkynningarskyldu milli aðila og gagnvart Persónuvernd og embætti landlæknis er nánar lýst í Vinnslusamningnum.

6.9. Skaðleysi vegna efnis og notenda. Viðskiptavinurinn skal halda Konkret Health skaðlausu af kröfum þriðja aðila sem rekja má til gagna sem hann eða notendur hans færa í Þjónustuna eða til athafna þeirra við notkun hennar, þ.m.t. krafna vegna ólögmætrar vinnslu, brota á þagnarskyldu eða hugverkaréttindum. Skaðleysið nær ekki til krafna sem rekja má til Þjónustunnar sjálfrar, til efnis sem Konkret Health lét í té, eða til vanefnda Konkret Health á þessum skilmálum eða Vinnslusamningnum. Konkret Health skal tilkynna Viðskiptavininum án ótilhlýðilegrar tafar um slíka kröfu og veita honum eðlilegt færi á að taka til varna.

6.10. Engin vöktunarskylda. Konkret Health hefur hvorki skyldu né heimild til að yfirfara efni sem Viðskiptavinurinn eða notendur hans færa í Þjónustuna, og ber ekki ábyrgð á lögmæti þess eða réttmæti. Þetta hefur ekki áhrif á skyldur Konkret Health sem vinnsluaðila skv. Vinnslusamningnum, né á heimild skv. gr. 7.2 til að bregðast við rökstuddum grun um öryggisógn eða misnotkun.

7. Aðgangur notenda

7.1. Aðgangur að Konkret er veittur einstökum notendum á ábyrgð Viðskiptavinarins. Auðkenning fer fram með rafrænum skilríkjum (Kenni.is). Notendur skulu aldrei deila skilríkjum.

7.2. Viðskiptavinurinn ber ábyrgð á allri notkun sem fram fer undir aðgangi notenda sinna. Konkret Health er heimilt að takmarka eða loka aðgangi tímabundið ef rökstuddur grunur er um öryggisógn, misnotkun eða verulegt brot á skilmálum, og skal upplýsa Viðskiptavininn eins fljótt og unnt er.

8. Gjöld og greiðsluskilmálar

8.1. Viðskiptavinurinn greiðir áskriftar- og þjónustugjöld samkvæmt áskriftaryfirliti. Áskriftargjald greiðist mánaðarlega fyrir hvern virkan notanda sem er heilbrigðisstarfsmaður, og miðast fjöldinn við stöðu við reikningsgerð hvers mánaðar; aðgangur annarra notenda, svo sem ritara, er án gjalds. Í áskriftaryfirliti má kveða á um fast mánaðargjald í stað gjalds fyrir hvern notanda.

8.2. Uppsetningar- eða innleiðingargjald, ef við á, kemur fram í áskriftaryfirliti.

8.3. Nema annað sé tekið fram eru gjöld tilgreind án virðisaukaskatts, sem leggst við eftir því sem lög mæla fyrir um.

8.4. Reikningar eru gefnir út með reglubundnu millibili (t.d. mánaðarlega eða árlega eftir áskriftarleið) og falla í eindaga fjórtán (14) dögum eftir útgáfudag. Við vanskil er Konkret Health heimilt að reikna dráttarvexti skv. lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

8.5. Konkret Health er heimilt að breyta gjöldum, þ.m.t. tímagjaldi skv. gr. 8.7, með a.m.k. 30 daga fyrirvara skv. gr. 16.1. Verðbreytingar taka gildi við upphaf næsta áskriftartímabils að loknum tilkynningarfresti, og fylgir tilkynningunni uppfært áskriftaryfirlit. Sætti Viðskiptavinurinn sig ekki við hækkun gjalda er honum heimilt að segja samningnum upp skv. gr. 16.4; að öðrum kosti gilda nýju gjöldin frá gildistöku þeirra.

8.6. Sé reikningur ógreiddur 90 dögum eftir eindaga er Konkret Health heimilt, að undangenginni skriflegri áminningu, að takmarka eða loka aðgangi. Slík takmörkun leysir Viðskiptavininn ekki undan lögbundinni skyldu til varðveislu sjúkraskráa, og Konkret Health skal áfram tryggja Viðskiptavininum aðgang að útflutningi sjúkraskrárgagna, hvort sem samningi hefur verið sagt upp eða ekki.

8.7. Aðstoð umfram staðlaða virkni. Fyrir aðstoð sem Konkret Health veitir að beiðni Viðskiptavinarins umfram staðlaða virkni Þjónustunnar og það sem innifalið er í áskrift, svo sem umfangsmikla útflutnings- eða flutningsaðstoð skv. gr. 14.3 og gjaldskylda aðstoð skv. 8., 9. og 12. gr. Vinnslusamningsins, greiðir Viðskiptavinurinn gjald samkvæmt tímagjaldi sem tilgreint er í áskriftaryfirliti. Áður en gjaldskyld vinna hefst lætur Konkret Health Viðskiptavininum í té skriflega áætlun um umfang hennar og kostnað, og hefst vinnan ekki fyrr en Viðskiptavinurinn hefur samþykkt áætlunina. Gjald verður hvorki tekið án samþykktrar áætlunar né umfram hana.

9. Aðgengi, viðhald og stuðningur

9.1. Konkret Health rekur Þjónustuna af fagmennsku og með hæfilegri kostgæfni og leitast við að halda henni aðgengilegri. Konkret Health veitir þó enga tryggingu um samfellt, ótruflað eða villulaust aðgengi.

9.2. Áætlað viðhald. Áætlað viðhald og uppfærslur eru tilkynntar með a.m.k. 48 klukkustunda fyrirvara og eru að jafnaði unnar utan tímabilsins kl. 08:00–17:00 á virkum dögum. Konkret Health er heimilt að framkvæma nauðsynlegt neyðarviðhald án fyrirvara þegar öryggi eða heilleiki Þjónustunnar krefst þess.

9.3. Stuðningur og viðbragðstími. Konkret Health veitir stuðning um netfangið konkret@konkret.is á vinnutíma (kl. 09:00–17:00 á virkum dögum). Viðbragðsmarkmið eftir alvarleika erindis eru:

Viðbragðstími vísar til fyrsta svars; Konkret Health leitast við að leysa úr málum eins fljótt og eðli þeirra leyfir.

9.4. Yfirlit. Konkret Health veitir Viðskiptavininum, sé þess óskað, yfirlit yfir meiri háttar rekstrartruflanir á liðnu tímabili.

9.5. Konkret Health ber ekki ábyrgð á skerðingu aðgengis sem stafar af atvikum utan eðlilegrar stjórnunar Konkret Health, þ.m.t. bilunum hjá undirvinnsluaðilum eða fjarskiptaveitum, rafmagnsleysi, netárásum eða óviðráðanlegum atvikum skv. 15. gr. Ákvæðið tekur eingöngu til aðgengis og hefur engin áhrif á fulla ábyrgð Konkret Health á efndum undirvinnsluaðila skv. gr. 7.4 í Vinnslusamningnum, sem er ófrávíkjanleg skv. 4. mgr. 28. gr. GDPR.

10. Trúnaður

10.1. Hvor aðili um sig skal gæta trúnaðar um trúnaðarupplýsingar hins aðilans sem hann fær vitneskju um í tengslum við samninginn, og nota þær einungis í þágu efnda hans.

10.2. Til trúnaðarupplýsinga teljast m.a. viðskiptaskilmálar, verð, tæknilegar upplýsingar og rekstrarupplýsingar. Um sjúkraskrárupplýsingar og aðrar persónuupplýsingar fer skv. Vinnslusamningnum.

10.3. Trúnaðarskyldan gildir ekki um upplýsingar sem eru eða verða opinberar án brots, sem aðili hafði áður réttilega í fórum sínum, eða sem honum ber að afhenda samkvæmt lögum eða kröfu stjórnvalds. Trúnaðarskyldan helst eftir að samningi lýkur.

11. Hugverkaréttindi

11.1. Konkret Health og/eða leyfisveitendur Konkret Health eiga öll hugverkaréttindi í Konkret, hugbúnaðinum og tilheyrandi efni. Viðskiptavininum er veittur óframseljanlegur afnotaréttur, án einkaréttar, af Þjónustunni á áskriftartímanum, í samræmi við þessa skilmála.

11.2. Viðskiptavinurinn og skjólstæðingar hans eiga áfram öll réttindi yfir þeim gögnum sem færð eru í Konkret. Konkret Health öðlast engin eignarréttindi yfir slíkum gögnum og vinnur þau einungis sem vinnsluaðili skv. Vinnslusamningnum.

11.3. Matstæki og viðmiðunargögn. Að því marki sem Þjónustan lætur í té stöðluð matstæki eða eyðublöð ábyrgist Konkret Health að hafa aflað þeirra heimilda sem þarf til að bjóða þau innan Þjónustunnar.

11.4. Efni sem Viðskiptavinurinn færir inn. Viðskiptavinurinn ábyrgist að hafa tilskilin leyfi fyrir því efni sem hann eða notendur hans færa sjálfir inn í Þjónustuna, þ.m.t. matstækjum og viðmiðunargögnum, og heldur Konkret Health skaðlausu af kröfum þriðja aðila vegna þess, þó ekki að því marki sem krafan verður rakin til Þjónustunnar sjálfrar eða til efnis sem Konkret Health lét í té. Um tilkynningu og varnir fer skv. gr. 6.9. Konkret Health kannar ekki réttarstöðu slíks efnis. Útflutningur skv. 14. gr. veitir enga sjálfstæða heimild til að dreifa matstækjum þriðja aðila út fyrir Þjónustuna.

11.5. Samandregin notkunartölfræði. Konkret Health er heimilt að vinna samandregnar, ópersónugreinanlegar tölfræðiupplýsingar um notkun Þjónustunnar (svo sem tíðni aðgerða, svartíma og villutíðni) í þeim tilgangi einum að reka, tryggja öryggi og þróa Þjónustuna. Slíkar upplýsingar skulu aldrei innihalda sjúkraskrárupplýsingar, efni úr þeim, né gögn sem rekja má til einstaks skjólstæðings, notanda eða Viðskiptavinar. Ákvæðið veitir Konkret Health engan rétt til vinnslu persónuupplýsinga umfram það sem Vinnslusamningurinn heimilar.

12. Ábyrgð og takmörkun ábyrgðar

12.1. Að því marki sem lög leyfa ber Konkret Health ekki ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni, þ.m.t. rekstrarstöðvun, tekju- eða viðskiptamissi, tapi á gögnum umfram það sem endurheimta má úr afritunarkerfum, eða tapaðri viðskiptavild.

12.2. Að því marki sem lög leyfa takmarkast heildarbótaábyrgð Konkret Health gagnvart Viðskiptavininum vegna krafna sem rísa á hverju 12 mánaða tímabili við fjárhæð þeirra þjónustugjalda sem Viðskiptavinurinn greiddi Konkret Health á næstliðnum sex mánuðum áður en tjónsatvik varð, þó aldrei hærri fjárhæð en fimm milljónir króna.

12.3. Takmarkanir í gr. 12.1 og 12.2 gilda ekki um tjón sem rekja má til ásetnings eða stórkostlegs gáleysis, um líkamstjón eða um ábyrgð sem óheimilt er að takmarka samkvæmt ófrávíkjanlegum lögum, þ.m.t. bótaábyrgð samkvæmt 82. gr. GDPR og stjórnvaldssektir. Skipting slíkrar ábyrgðar milli ábyrgðaraðila og vinnsluaðila ræðst af gildandi lögum.

12.4. Konkret Health veitir Þjónustuna „eins og hún er“ og „eins og hún er aðgengileg“ að öðru leyti en því sem beinlínis er kveðið á um í þessum skilmálum, og veitir engar frekari óbeinar ábyrgðir umfram það sem ófrávíkjanleg lög mæla fyrir um.

13. Gildistími og uppsögn

13.1. Samningurinn tekur gildi við staðfestingu skilmálanna eða þegar Þjónustan er tekin í notkun, hvort sem fyrr verður, og gildir á meðan áskrift stendur.

13.2. Nema um annað sé samið er áskriftin ótímabundin og uppsegjanleg af hvorum aðila með þriggja (3) mánaða skriflegum fyrirvara miðað við lok yfirstandandi greiðslutímabils. Fyrirframgreidd gjöld fyrir yfirstandandi greiðslutímabil endurgreiðast ekki við uppsögn, nema uppsögn megi rekja til verulegrar vanefndar Konkret Health.

13.3. Hvorum aðila er heimilt að rifta samningnum með skriflegri tilkynningu ef hinn aðilinn gerist sekur um verulega vanefnd og bætir ekki úr innan 30 daga frá skriflegri áskorun þar um, eða ef hinn aðilinn verður gjaldþrota eða stöðvar rekstur.

13.4. Uppsögn eða riftun leysir Viðskiptavininn hvorki undan lögbundinni skyldu til varðveislu sjúkraskráa né hefur áhrif á áfallnar greiðsluskuldbindingar. Ákvæði um trúnað, hugverkaréttindi, ábyrgðartakmörkun, gagnaskil (14. gr.) og lagaskil halda gildi eftir samningslok eftir því sem eðli þeirra segir til um.

14. Gögn við samningslok

14.1. Við lok samnings, óháð ástæðu, skal Konkret Health veita Viðskiptavininum aðstoð við skipulegan útflutning og skil allra sjúkraskrárgagna og annarra persónuupplýsinga hans, á tölvulesanlegu og stöðluðu sniði, til Viðskiptavinarins eða þess kerfis sem hann tilgreinir. Sjúkraskrárgögnum verður ekki eytt við samningslok, sbr. 7. gr. laga nr. 55/2009.

14.2. Um framkvæmd skila og eyðingar, og um flutning sjúkraskráa til landlæknis verði rekstri kerfisins hætt, fer skv. 11. gr. Vinnslusamningsins. Sú skylda stendur óháð stöðu greiðslna og gengur framar gr. 8.6.

14.3. Útflutningur með staðlaðri útflutningsvirkni Þjónustunnar er án endurgjalds. Fyrir umfangsmikla útflutnings- eða flutningsaðstoð umfram hana greiðist tímagjald skv. gr. 8.7.

15. Óviðráðanleg atvik (force majeure)

15.1. Hvorugur aðili ber ábyrgð á vanefndum sem rekja má til óviðráðanlegra atvika sem hann fékk ekki með sanngjörnum hætti komið í veg fyrir eða yfirstigið, þ.m.t. náttúruhamfara, styrjalda, farsótta, allsherjar fjarskipta- eða rafmagnsleysis eða aðgerða stjórnvalda. Skyldan til varðveislu og trúnaðar helst þó eftir sem áður, sem og ábyrgð Konkret Health á undirvinnsluaðilum skv. gr. 7.4 í Vinnslusamningnum.

16. Breytingar á skilmálum

16.1. Konkret Health er heimilt að breyta þessum skilmálum með a.m.k. 30 daga fyrirvara. Breytingar skulu tilkynntar Viðskiptavininum skriflega á tengiliðanetfang hans skv. 18. gr., og eftir atvikum jafnframt innan Þjónustunnar, ásamt nýju útgáfuauðkenni. Í tilkynningunni skal lýsa efni breytinganna og gildistökudegi og greina frá rétti Viðskiptavinarins skv. gr. 16.3 og 16.4.

16.2. Haldi Viðskiptavinurinn áfram að nota Þjónustuna eftir gildistöku breytinga án þess að hafa sagt samningnum upp skv. gr. 16.4 telst hann hafa samþykkt þær, sbr. þó gr. 16.3.

16.3. Feli breyting í sér verulega íþyngjandi röskun á réttindum Viðskiptavinarins, svo sem skerðingu á meginvirkni Þjónustunnar, aukna takmörkun á ábyrgð Konkret Health eða lakari kjör við samningslok, tekur hún ekki gildi gagnvart honum nema hann samþykki hana sérstaklega, t.d. með rafrænni undirritun eða staðfestingu. Þar til hann hefur samþykkt hana gilda eldri skilmálar um samningssamband aðila, og er hvorum aðila heimilt að segja samningnum upp, Viðskiptavininum skv. gr. 16.4 og Konkret Health skv. gr. 13.2. Um breytingar á gjöldum fer skv. gr. 8.5.

16.4. Viðskiptavininum er heimilt að segja samningnum upp án viðurlaga vegna breytingar á skilmálum eða gjöldum, með skriflegri tilkynningu fyrir gildistökudag breytingarinnar eða, sé um breytingu skv. gr. 16.3 að ræða, hvenær sem er áður en hann hefur samþykkt hana. Uppsagnarfrestur skv. gr. 13.2 gildir ekki um slíka uppsögn. Hún tekur gildi á þeim degi sem Viðskiptavinurinn tilgreinir, þó eigi síðar en þremur mánuðum eftir að hún berst, og fram að samningslokum gilda eldri skilmálar og gjöld. Þrátt fyrir 2. málsl. gr. 13.2 endurgreiðast fyrirframgreidd gjöld vegna tímabils eftir samningslok hlutfallslega.

16.5. Breytingar sem leiða af ófrávíkjanlegum lögum eða fyrirmælum eftirlitsstjórnvalda geta tekið gildi með skemmri fyrirvara ef nauðsyn krefur.

17. Framsal

17.1. Viðskiptavininum er óheimilt að framselja réttindi eða skyldur samkvæmt samningnum án skriflegs samþykkis Konkret Health.

17.2. Konkret Health er heimilt að framselja samninginn til tengds félags eða í tengslum við samruna eða sölu rekstrar, enda skerðist réttindi Viðskiptavinarins ekki og lögbundin vernd sjúkraskrárgagna haldist óröskuð. Framsalið tekur jafnframt til Vinnslusamningsins, og tekur viðtakandi við öllum réttindum og skyldum Konkret Health samkvæmt hvorum tveggja, þ.m.t. skyldum vinnsluaðila skv. 28. gr. GDPR og skyldum skv. 11. gr. Vinnslusamningsins. Framsal er háð því að viðtakandi hafi skuldbundið sig til þess skriflega áður en það tekur gildi, og tilkynnir Konkret Health Viðskiptavininum um það skriflega eigi síðar en við gildistöku þess.

18. Tilkynningar

18.1. Tilkynningar samkvæmt samningnum skulu vera skriflegar og sendar á skráð tengiliðanetföng aðila. Netfang Konkret Health er konkret@konkret.is; netfang Viðskiptavinarins er það sem skráð er við nýskráningu. Tilkynning telst móttekin þegar hún berst viðtakanda með sannanlegum hætti.

19. Lagaskil og varnarþing

19.1. Um samninginn gilda íslensk lög.

19.2. Rísi ágreiningur um samninginn sem ekki verður leystur með samkomulagi skal reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

20. Ýmis ákvæði

20.1. Verði ákvæði samningsins metið ógilt raskar það ekki gildi annarra ákvæða.

20.2. Samningurinn, ásamt Vinnslusamningnum og fylgiskjölum skv. 3. gr., felur í sér heildarsamkomulag aðila um efni hans og gengur framar fyrri munnlegum eða skriflegum samskiptum um sama efni.

20.3. Samninginn má undirrita og staðfesta rafrænt, þ.m.t. með rafrænum skilríkjum eða um rafræna undirritunarþjónustu (t.d. eSigna eða Taktikal), og telst slík staðfesting jafngild undirritun.


Undirritun

Konkret Health ehf.
Kt.: 7006262450
Heimilisfang: Reynihlíð 9, 105 Reykjavík
Konkret Health sendir samninginn til undirritunar og er bundin af honum frá þeim tíma sem Viðskiptavinurinn undirritar hann.

Viðskiptavinur (veitandi heilbrigðisþjónustu / ábyrgðaraðili sjúkraskráa)
Nafn stofu: __________________________________
Kt.: _________________________________________
Nafn og staða undirritaðs: ___________________
Dagsetning: __________________________________

Útgáfa skilmála: v3