Fyrir talmeinafræðinga

Sjúkraskrárkerfi sem hentar talmeinafræðingum

Tilvísun, mat, markmið, þjálfunartímar, heimaæfingar og endurmat í einni skrá. Konkret er íslenskt sjúkraskrárkerfi byggt utan um klíníska vinnu sem talmeinafræðingar þekkja: matið sem svarað er í tæki skjólstæðingsins, markmiðin sem eru rakin milli tíma og æfingarnar sem fylgja honum heim.

Frá 1. desember 2026 ber öllum talmeinafræðingum að halda rafræna sjúkraskrá. Hvað skyldan felur í sér.

  • Skráð hjá Embætti landlæknis
  • Íslenskt
  • Hýst innan EES
  • Uppfyllir lög nr. 55/2009 og GDPR
Rafræn sjúkraskrá verður skylda 1. des. 2026.

4. gr. laga nr. 55/2009, sbr. 3. gr. laga nr. 81/2025: „Heilbrigðisstarfsmaður sem fær sjúkling til meðferðar skal færa sjúkraskrá í stafrænt sjúkraskrárkerfi.“

Margir sjálfstætt starfandi talmeinafræðingar standa frammi fyrir því að velja sér kerfi á næstu mánuðum. Það borgar sig að skoða fyrst íslenska lausn sem er byggð utan um klíníska vinnu en ekki almennt bókhaldskerfi með sjúkraskrá bætt aftan á.

Innleiðing, uppsetningarfundur á stofunni, flutningur úr eldra kerfi og þjálfun starfsfólks fylgja án gjalds. Konkret er skráð hjá Embætti landlæknis.

Kannastu við þetta?

Vinnan er ekki bara tíminn sjálfur.

Þjálfun er löng leið: mat, markmið, tugir tíma og æfingar á milli þeirra. Það er sá hluti sem kerfin hafa yfirleitt ekki hjálpað við.

  • Æfingarnar fara heim á blaði sem kemur aldrei til baka, og þú veist ekki hvað var gert.
  • Framvindan er í hausnum á þér og í Word-skjali sem þú finnur ekki þegar skólinn hringir.
  • Þú bókar tuttugu tíma í röð, einn í einu.
  • Matslistarnir eru á pappír og þú leggur saman í höndunum.
  • Foreldrar og kennarar svara á þremur stöðum og þú slærð svörin inn sjálf.
  • Skýrslan til skólans er skrifuð upp á nýtt í hvert sinn.
Verkfærin

Frá tilvísun til endurmats, í sömu skrá.

Kerfið fylgir allri leiðinni, ekki bara matinu í upphafi og skýrslunni í lokin.

01 / Tilvísun

Beiðnir og biðlisti á einum stað

Nýjar beiðnir og gögn berast gegnum skjólstæðingagáttina og fara skipulega á biðlista, í stað þess að dreifast á tölvupóst og símtöl. Í hina áttina veitir þú skjólstæðingum upplýsingar gegnum sömu gátt.

02 / Mat

Matinu er svarað í tæki skjólstæðingsins

Þú notar matslistana sem stofan hefur leyfi fyrir og býrð til þína eigin. Skjólstæðingar svara þeim í eigin tæki með rafrænum skilríkjum og niðurstöður reiknast sjálfkrafa. Hægt er að bæta við upplýsingagjöfum eftir því sem við á, til dæmis foreldri eða kennara, og kerfið minnir sjálft á að klára listana.

03 / Markmið

Markmiðin standa í skránni, ekki í minninu

Þú skráir markmiðin sem þjálfunin snýst um, með markdagsetningu og stöðu, og tengir þau við það sem verið er að vinna með. Þau fylgja skrá skjólstæðingsins milli tíma, svo þú og afleysingin sjáið sömu áætlun.

04 / Þjálfunartímar

Heil lota bókuð í einu, nótan töluð inn

Innbyggt bókunarkerfi fylgir Konkret. Þú bókar heila tímaröð í einu og kerfið heldur utan um hana, skjólstæðingar sjá lausa tíma og bóka sjálfir, og áminning fer sjálfkrafa fyrir tímann. Nótuna talarðu inn og hún skrifast beint í kerfið.

05 / Heimaæfingar

Æfingarnar fylgja skjólstæðingnum heim

Þú setur saman verkefni með leiðbeiningum, hlekk, hljóðskrá eða myndbandi og bindur skiladaginn við næsta tíma. Stofan geymir sín eigin sniðmát svo þú byrjar ekki upp á nýtt í hvert sinn. Skjólstæðingurinn, eða foreldrið, sér verkefnið á Mínum síðum og þú sérð hvað var klárað.

06 / Framvinda

Þú sérð hvort það er að þokast

Endurtekin möt teiknast upp sem línurit, ein lína fyrir hvert matstæki og hvern svaranda. Þú sérð þróunina á einum stað í stað þess að fletta upp gömlum svörum og bera þau saman í höndunum.

07 / Skjöl

Skjöl berast auðkennd, ekki í tölvupósti

Skóli, heilsugæsla eða skjólstæðingurinn sjálfur sendir þér skjöl auðkennd með rafrænum skilríkjum. Þau bíða í móttökuhólfi þar til þú vistar þau í réttri skrá, svo ekkert lendir í sjúkraskránni án þinnar ákvörðunar. Í hina áttina sendirðu skjöl til undirritunar beint úr kerfinu.

08 / Skýrslur

Þú byrjar ekki á auðu blaði

Skýrslur eru á formi sem stofan ákveður og gögnin færast inn úr skrá skjólstæðingsins, svo nöfn, aldur og dagsetningar eru ekki slegin inn aftur. Þú getur alltaf hlaðið gögnunum niður.

09 / Trúnaður

Engin önnur stofa sér þínar skrár

Sjúkraskrárnar þínar eru læstar við þína stofu og starfsfólk Konkret kemst ekki í þær. Gögnin eru dulkóðuð og varðveitt innan EES, í samræmi við lög nr. 55/2009 og GDPR.

Gögnin þín eru geymd á opnu, alþjóðlegu sniði sem íslensk og evrópsk heilbrigðiskerfi stefna á. Þú getur því alltaf flutt þau með þér.
  • Opið gagnasnið
  • Hýst í Evrópu
  • Lög 55/2009
  • GDPR
Hreint út

Já, Konkret var byggt fyrir sálfræðinga fyrst.

Við segjum það frekar en að láta þig komast að því seinna. Klíníska vinnan er að miklu leyti sú sama: mat sem svarað er í tæki skjólstæðingsins og reiknast sjálfkrafa, markmið sem eru rakin milli tíma, nótur, skýrslur og skjöl sem þurfa undirritun.

Það sem er ólíkt, æfingarnar milli tíma og langar þjálfunarlotur, höfum við verið að byggja síðan. Það sem vantar segjum við þér áður en þú kaupir, ekki eftir á. Þess vegna eru spurningarnar hér að neðan með svörunum sem eru nei.

Algengar spurningar

Það sem fólk spyr að.

Vantar eitthvað? Sendu á tal@konkret.is og þú færð svar frá manneskju.

Fylgja matslistar með kerfinu?

Sumir. Listar sem eru í almenningseign fylgja, og við semjum með þér þau eyðublöð sem eru þín eigin: móttökuskjal, málþroskasaga, raddsaga, upplýsingar frá kennara. Sérhæfð matstæki talmeinafræðinga eru hins vegar nær öll höfundarréttarvarin eða seld af útgefanda, og við sendum ekki með okkur það sem við höfum ekki leyfi fyrir. Það á líka við um normin: þú notar þau viðmið sem stofan hefur leyfi fyrir.

Ég á mín matstæki á pappír. Get ég notað þau?

Já. Þú hleður upp PDF-inu og kerfið les spurningarnar út úr því, eða þú byggir listann í smiðnum. Stigareglur og þröskuldar eru stillt með, svo eftir það reiknast listinn sjálfkrafa þegar honum er svarað.

Get ég flutt gögnin mín úr Word eða eldra kerfi?

Já. Flutningur úr eldra kerfi er hluti af innleiðingunni og fylgir án gjalds.

Hvað með Sjúkratryggingar?

Reikningagerð og uppgjör eru í kerfinu. Sjálfvirku skilin til Sjúkratrygginga voru hins vegar byggð utan um rammasamning sálfræðinga og við höfum ekki staðfest þau fyrir rammasamning talmeinafræðinga. Við förum yfir þinn samning með þér áður en þú byrjar, frekar en að lofa því hér.

Er fjarþjálfun í boði?

Fjarviðtal er í dag skráð rétt í sjúkraskrána, sem sérstök tegund viðtals eins og reglugerð nr. 550/2015 gerir ráð fyrir. Myndsamtalið sjálft er ekki innbyggt enn: það er í þróun og væntanlegt. Þangað til notarðu áfram þá lausn sem þú notar í dag, og viðtalið skráist eftir sem áður rétt.

Hvað kostar þetta?

Verðið fer eftir stærð stofunnar og við sendum þér tilboð þegar við höfum heyrt í þér. Þeir sem hafa samband núna fá fría fyrstu mánuði frá því að stofan byrjar að nota kerfið. Við birtum ekki verðskrá hér, því tala á vefsíðu úreldist og segir lítið áður en við vitum hvað þú þarft.

Hvað gerist ef ég hætti?

Þú getur sagt upp hvenær sem er. Sjúkraskráin er geymd á opnu, alþjóðlegu sniði sem evrópsk heilbrigðiskerfi stefna á, og hættir þú hjá okkur afhendum við hana á því sniði. Gögnin þín læsast ekki inni.

Hver kemst í gögnin?

Þú og það starfsfólk sem þú veitir aðgang. Engin önnur stofa sér skrárnar þínar, og starfsfólk Konkret kemst ekki í þær. Hver uppfletting í sjúkraskrá er skráð, eins og reglugerð nr. 550/2015 segir til um.

Næsta skref

Fáðu kynningu

Tuttugu mínútur á fjarfundi eða á stofunni hjá þér, þar sem farið er í gegnum kerfið út frá þínum vinnubrögðum. Þeir sem hafa samband fá kynningartilboð: fría fyrstu mánuði frá því að stofan byrjar að nota kerfið, og verð sem miðast við stærð stofunnar. Þú getur sagt upp hvenær sem er og tekið gögnin þín með þér.

Spurningar? tal@konkret.is eða 848-1528
Konkret Health ehf. · konkret.is · Gögn varðveitt innan EES.